Episodes
Monday May 25, 2020
Frú Barnaby: 9. þáttur - Í skúlptúrgarðinum
Monday May 25, 2020
Monday May 25, 2020
Í þessum þætti erum við Lóa og Móa staddar við opnun á skúlptúrgarði í Midsomer. Grunlausar um að garðurinn verður vettvangur hrottalegs morðs! Líf og dauði listarinnar, myndhöggvarar, engill af himnum, gullgosbrunnur. Þessi þáttur gæti mögulega orðið umdeildasti þáttur Frú Barnaby til þessa, sérstaklega hjá listamönnum og Vesturbæingum.
Monday May 18, 2020
Frú Barnaby: 8. þáttur - Brostin hjörtu
Monday May 18, 2020
Monday May 18, 2020
Alþýðukonurnar Móa og Lóa setja á sig Barnaby-gleraugun og velta fyrir sér samsæriskenningum um dauða Díönu Prinsessu. Rannsóknin er ítarleg, það er rætt um bílstjórann, göngin í 16. hverfi, bílalakk nú svo er farið yfir möguleg mótív, allt saman er mjög dularfullt og Midsommer kemur svo sannarlega upp í hugann og ekki nóg með það, mafían og Shakespeare!
Monday May 11, 2020
Frú Barnaby: 7. þáttur - Hjartadrottningin
Monday May 11, 2020
Monday May 11, 2020
Hjartadrottningin, prinsessa fólksins, Lady Di - Í þessum þætti förum við grundigt í sjálfa Hjartadrottninguna, skoðum ævi hennar, samfélag hennar. Fegurðarstaðlar, blátt blóð, product placement, kommúnismi, snobb og konungsfjölskyldan koma til tals. Móa og Lóa dreypa á Kir Royale og umbreytast í Málfríði Tungufoss, tvær sem ein!
Wednesday May 06, 2020
Frú Barnaby: 6. þáttur - Á hringveginum
Wednesday May 06, 2020
Wednesday May 06, 2020
Frú Barnaby fer í ferðalag um landið og rúma öld aftur í tímann; rætt er um þjóðháttasafnið, nytjar og eggjatöku. Nú svo er rætt um ferðalög landans næsta sumar, lífið á tímum heimsfaraldurs og auðvitað Berlín norðursins, Langanesið.
Monday Apr 27, 2020
Frú Barnaby: 5. þáttur - Útúrdúr II
Monday Apr 27, 2020
Monday Apr 27, 2020
Við höldum áfram á vegferðinni í því að kynnast þáttastjórnendum. Nú svo förum við í tilvistarfræðilegar spurningar eins og; Hvers vegna hlaðvarp? Hvers vegna við? Nú við förum í að skoða erkitýpur morðingja, stjörnumerki svo fátt eitt sé nefnt í þessum afar gómsæta þætti.
Tuesday Apr 21, 2020
Frú Barnaby: 4. þáttur - Útúrdúr
Tuesday Apr 21, 2020
Tuesday Apr 21, 2020
Í þessum þætti eru sjálfar Móa og Lóa kynntar til leiks það er opnuð freyðivínsflaska í útsendingu og rætt er um barnæskuna í Skagafirði, gjörningalist og ýmsa útúrdúra.
Tuesday Apr 14, 2020
Frú Barnaby: 3. þáttur - Bein leið
Tuesday Apr 14, 2020
Tuesday Apr 14, 2020
Í þessum þriðja þætti fara Lóa og Móa lengst aftur í fornaldir og rýna í allra fyrsta Barnaby þáttinn. Til gamans má geta þess að Frú Barnaby er öll að koma til í tækninni og notast við svokölluð áhrifshljóð. Njótið!
Tuesday Apr 07, 2020
Frú Barnaby: 2. þáttur - Áfram veginn
Tuesday Apr 07, 2020
Tuesday Apr 07, 2020
Fyrst er farið í ótrúlegar viðtökur sem 1. þátturinn fékk nú svo er farið grannt í persónugalleríið í Midsommer, kynhlutverk og fjölbreytileiki eru rædd. Nú svo er að sjálfsögðu Díönuhornið allt saman yfir góðu english breakfast 🥂
Thursday Apr 02, 2020
Frú Barnaby: 1. þáttur - Ágætis byrjun
Thursday Apr 02, 2020
Thursday Apr 02, 2020
Einhver staðar verðum við að byrja — Lóa og Móa kynna til leiks Frú Barnaby